Skilmálar
1. Almenn ákvæði
Sportbasinn starfar sem milliliður fyrir sölu á notuðum íþróttafatnaði og íþróttatengdum vörum. Með því að skrá eða senda inn vöru til sölu samþykkir þú að Sportbasinn megi auglýsa og selja vöruna í verslun og/eða í vefverslun.
Allir viðskiptavinir skuldbinda sig til að fylgja þessum skilmálum sem og gildandi lögum um neytendakaup og neytendasamninga.
2. Réttur til að fella niður sölu / hafna vöru
Við áskiljum okkur rétt til að hafna eða taka vöru úr sölu hvenær sem er, án fyrirvara, ef:
-
varan selst ekki innan hæfilegs tíma,
-
varan uppfyllir ekki gæðakröfur eða útlitsstaðla Sportbasans,
-
eða ef annað tilefni kemur upp sem réttlætir slíkt.
Ef vara er tekin úr sölu eða ef Sportbásinn biður seljanda að sækja vörur hefur eigandi 30 daga til að sækja hana. Að þeim tíma liðnum áskiljum við okkur rétt til að farga vörunni eða framsenda hana til góðgerðarmála/endurvinnslu.
3. Skilmálar varðandi greiðslur og þóknun
-
Sportbasinn tekur 28% þóknun af hverri seldri vöru.
-
Seljandi greiðir ekkert fyrir að koma með vörur, nema sérstaklega sé samið um aukakostnað (t.d. uppsetning eða lúxus þjónustan).
- 1.000kr Skráningar/Geymslugjald leggst ofan á verðið á hverji vöru sem skráð er. Seljandi greiðir ekki þetta gjald og eru því engin útgjöld við það að skrá vörur hjá Sportbásnum. Gjaldið er nýtt til að standa straum af þjónustu, vörustjórnun og rekstri kerfisins, og gerir okkur kleift að bjóða uppá ókeypis skráningu á vörum fyrir alla seljendur. Seljandi fær ekki þóknun af þessum 1.000kr.
-
Greiðsla til seljanda fer fram mánaðarlega eða samkvæmt sérstöku samkomulagi, að frádreginni þóknun Sportbasans.
4. Ábyrgð og kvartanir
-
Allar vörur eru seldar í því ástandi sem þær eru við móttöku. Þar sem um er að ræða notaðar vörur tekur kaupandi áhættu um eðlileg slit eða notkunarmerki.
-
Sportbásinn ber ekki ábyrgð á gæðum vörunnar eftir sölu – ábyrgð liggur hjá seljanda.
-
Ef vara reynist gölluð samkvæmt lögum um neytendakaup á kaupandi rétt á úrbótum, afslætti eða riftun. Kvörtun þarf að berast án ástæðulauss dráttar.
-
Sportbasinn tryggir örugga meðferð og geymslu vara á meðan þær eru í okkar vörslu.
- Sportbásinn ber ekki ábyrgð á stolnum, týndum né skemmdum vörum.
5. Skil, endurgreiðslur og afpantanir
-
Í vefverslun: Kaupandi á 14 daga rétt til að falla frá samningi samkvæmt lögum nr. 16/2016. Vöru skal skila í sama ástandi og hún var afhent.
-
Endurgreiðsla fer fram innan hæfilegs tíma eftir móttöku skilanna, með sama greiðslumáta og notaður var.
-
Undanþágur frá skilarétti eru vörur sem flokkast sem hreinlætisvörur ef umbúðir hafa verið rofnar, og sérpantanir/sérsniðnar vörur.
-
Afpöntun er aðeins möguleg áður en pöntun hefur verið send eða sett í pökkun.
6. Breytingar á skilmálum
Við áskiljum okkur rétt til að breyta skilmálum hvenær sem er. Nýir skilmálar taka gildi við birtingu á vefsíðunni sportbasinn.is.