1. Endurgreiðslustefna
Í verslun (staðkaup)
-
Engin endurgreiðsla á ógölluðum vörum sem keyptar eru í verslun.
-
Ef vara reynist gölluð gildir ábyrgð samkvæmt neytendakaupalögum.
-
Endurgreiðsla fer þá fram í samræmi við lög (oftast með sama greiðslumáta og notaður var).
Í vefverslun (fjarsala)
-
Neytandi á 14 daga rétt til að falla frá samningi frá móttöku vöru.
-
Við skil innan lögbundins frests endurgreiðir Sportbasinn kaupverð vörunnar og grunnsendingarkostnað.
-
Aukakostnaður (t.d. hraðsending) er ekki endurgreiddur.
-
Endurgreiðsla fer fram með sama greiðslumáta og notaður var við kaup.
Verðrýrnun
-
Ef varan hefur rýrnað í verði vegna notkunar umfram það sem nauðsynlegt er til að kanna eiginleika hennar, má Sportbasinn draga það frá endurgreiðslu.
2. Skilastefna
Í vefverslun
-
Vöru skal skila í sama ástandi og hún var afhent.
-
Varan þarf að vera hrein, óskemmd og með fylgihluti ef þeir fylgdu með.
-
Neytandi ber kostnað við að skila vöru nema Sportbasinn bjóði ókeypis skil.
-
Áhættan af flutningi er hjá neytanda þar til varan hefur borist Sportbasanum.
Undanþágur frá skilum
-
Vörur sem flokkast sem hreinlætisvörur og hafa verið opnaðar.
-
Sérpantanir eða sérsniðnar vörur.
-
Aðrar undanþágur sem kveðið er á um í lögum um neytendasamninga.
3. Afpöntunarstefna
Áður en pöntun er send
-
Hægt er að afpanta pöntun hvenær sem er áður en hún hefur verið pakkað eða send.
-
Ef greiðsla hefur þegar farið fram er hún endurgreidd í heild innan hæfilegs tíma.
Eftir að pöntun hefur verið send
-
Þá gildir 14 daga afturköllunarétturinn (sjá Endurgreiðslu- og Skilastefnu).
-
Viðskiptavinur þarf að taka við vörunni og skila henni samkvæmt skilastefnu.
Afpöntun sérpöntunar
-
Ef um er að ræða sérpöntun eða sérsmíðaða vöru er almennt ekki hægt að afpanta eftir að framleiðsla/pöntun hefur verið staðfest.